sunnudagur, apríl 27, 2003

Jæja þá er komið að því, ég sagði upp í vinnunni áðan!!
Nú verður ekki aftur snúið og ég segi bara: ,,Þýskaland here I come". Ákvörðunin um sumarið er sumsé tekin og er ég á leið til borgar sem heitir Heidelberg og er staðsett í Rínardalnum. Heidelberg er forn og falleg háskólaborg með ógrynni af ungu námsfólki og skemmtistöðum (humm... smá Salamanca fílingur í gangi..?). Svo verður farið í heimsókn til elsku banka-frænku á morgun, borgað fyrir herlegheitin og pantað flug út. Það væri líka ágætis hugmynd að leggjast yfir gömlu menntaskóla þýskubækurnar mínar svo ég verði nú örugglega ekki sett í tossabekkinn!

En sumarplanið er sumsé svohljóðandi:
26.maí -Seinasti vinnudagur á hótelinu góða..
31.maí -flýg út til Deutchland..
2. júní -skólinn byrjar og hefst glæstur náms/djamm ferill minn í sumar
20-22 júní -Hurricane tónlistarhátíðin með aðalskutlum sumarsins, Ástu og Ásu
25.júlí -seinasti skóladagur. -Fæ væntanlega fyrstu ágætiseinkun eins og venjulega (*hóst, hóst*)
26.júlí-?ágúst -áætlað er að fara í Interrail um A-Evrópu en við látum það nú bara ráðast með tilliti til aðstæðna (=peningamála) í sumar
September -Háskóli Íslands, -að öllum líkindum mannfræðin.

Vááááááá hvað ég er nú orðin skipulögð! Framtíðin bara komin á hreint næsta árið. Þetta er sko stórt skref hjá óákveðna tvíburanum mér!











þriðjudagur, apríl 22, 2003

LONDON HIGHLIGHTS...!
Jæja þá er Lundúnaferðin okkar Erlu búin. Það var mikið skoðað og gert og komst ég að þeirri niðurstöðu að ég er orðin ástfangin af London og ætla mér að búa þarna einn góðan veðurdag. Læt ég fylgja nokkur highlight ferðarinnar hér að neðan en ef einhver vill fá nánari útskýringar þá er bara að taka upp símann elskurnar mínar :)

Fólk, fólk og endalaust fólk! Það er eru allar manngerðir og tíbur undir sólinni sem labba framhjá þér á strætum Lundúna.. Fríkað fólk, manson fólk, snobblið, aristókratar, túristarnir, arabar, betlarar.. öllu ægir saman og ég gæti hæglega unað mér dögum saman bara við það að fylgjast með mannlífinu..

Leikhúsin! Við Erla skelltum okkur á My Fair Lady í Konunglega leikhúsinu (Theatre Roayal) og var það var hreint og beint ótrúleg upplifun. Söngurinn, dansarnir, leikurinn og leiksviðið var allt óaðfinnanlegt og litla ég tapaði mér algjörlega í einhverja tvo tíma og lifði mig inní heim Elisu Dolittle. Hreint og beint frábært eða eins og þeir segja í Bretalandi, jolly good!

Markaðurinn í Camden Town. Þetta var og er einn skrautlegast markaður og staður sem ég hef farið á! Þar ægði öllu saman og ég er fullviss um að þú getir keypt þar allt, -já allt sem til er undir sólinni! Frá rándýrum merkjavörum til búða sem sérhæfðu sig í masókista/sadista tækjum og fatnaði, til fína franskra veitingastaða og bása sem seldu eiturlyf og hasssleikjóa. Prútt var einkunarorð dagsins og fann ég mér þar sérdeilisprýðilegan kínabol, nákvæmlega eins og ég var búin að gjóa augunum á í 17 nema bara á svona 1/5 af verðinu eða 20 pund.

Rassinn á Brad Pitt! Ójá, haldið ykkur í sætisbökin því við fengum að klípa karlinn í rassinn!!! Komumst einnig up close og persónall við Tom Cruise, Maddonnu, Geri Halliwell, Mel Gibson, Elvis Prestley, Marilyn Monroe og marga marga fleiri. Eins og glöggir lesendur hafa vafalaust áttað sig á þá fórum við á Madamme Tussot safnið og skemtum okkur alveg rosalega vel.. -manni líður alltaf svo vel meðal jafningja- right... En aftur að rassinum! Það hefur nebblega verið í gegnum tíðina mikil ágengni við dúkkuna af Brad "mínum" Pitt. Nærbuxur hafa fundist í vasa hans og varalit klínt á alla bera staði á "líkama" hans. Því var tekið til þess ráðs að hafa samband við kappann sjálfan, fullkomið mót tekið af afturenda hans og steypt gúmmímót á dúkkuna! -Þannig nú má hver sem er koma og klípa smá og það var akkúrat sem við gerðum! Eða eins og dragdrottningin sem gætti hans sagði "very firm yes?!"

Skemmtistaðirnir: Við fórum að sjálfsögðu að djamma og eins og sönnum Íslendingum tókst okkur að komast frítt og VIP inn á alla staði sem við fórum á. Þar sem við vitum öll að London er dýr borg tókum við Erla þá meðvituðu ákvörðun að láta einhverja aðra (=ólánsama karlmenn) um að splæsa. Skelltum okkur á hótel barinn fyrsta kvöldið og byrjuðum að "gefa augað" væntanlegum fórnarlömbum kvöldsins. Enduðum á því að pikka upp nokkra þýskara á skólaferðalagi (voru samt alveg eldri en við sko, engir barnaræningjar takk!). Því miður höfðum við gleymt nísku þýsku þjóðarinnar þar sem gæjarnir tímdu ekki að borga inn á skemmtilstaðinn fyrir okkur þrátt fyrir að gamla "úps ég gleymdi víst peningnum mínum uppá hóteli" trikkið væri notað. Hagur okkar Erlu vænkaðist svo þegar ónefndur Indverji (minnir að hann hafi átt staðinn eða eitthvað) tók að sér að redda okkur frítt inn af því við vorum svooo sætar. Hittium helvítis nískupúkana aftur en þeir höfðu greinilega saknað okkar þar sem þeir tóku það að sér að splæsa á okkur á barinn, -hafa greinilega séð það sem betri fjárfestingu en aðgöngumiðann.... hupf!
Á laugardagskvöldinu hittum við heilan hóp af breskum/portúgölskum/indverskum gæjum sem vildu endilega sýna okkur bestu staðina. Við þáðum það að sjálfsögðu með þokkum enda sparaði það okkur veiðiferðina á barinn. Þeir leiddu okkur á Lechester Square og svo í "The Village". Þar fórum við á stað sem heitir Red Cube og á að sögn að vera einhver Celebstaður og frekar erfitt að komast inn. Það tókst nú samt og völsuðum við Erla inn en strákagreyin þurftu að borga ein 15 pund á kjaft og standa í röð. Æ æ æ.. en leiðinlegt að vera strákur.. ;) Áður en kvöldinu var lokið hafði okkur svo tekist að vingast persónulega við plötusnúðinn (geturðu ekki spilað bara EITT lag í viðbót með Justin Timberlake), komist inná VIP setustofuna og bragðað besta jarðaberjakokteil sem ég hef á ævinni smakkað.

Man ekki meira í bili... er sko að svíkjast um í vinnunni en mun skrifa meira þegar "andinn kemur yfir mig" á ný...













sunnudagur, apríl 13, 2003

Híhí var að taka fyndnasta próf í heimi... -og viðurkennið það bara! Þið horfið öll á þetta!!
MindyGuiding
Mindy Lewis (Melinda Sue):
Þúert algjor frekja og
pabbastelpa og faerd thad sem thu villt! Thu
ert fatahonnudur a uppleid og varst a leidinni
ad giftast syni fyrrverandi konu fyrrverandi
astmanns thins. Ekki orvaenta tho thu hafir
horfid i bili, thu kemur aftur!


Hvada Leidarljos karakter ertu?
brought to you by Quizilla











föstudagur, apríl 11, 2003

Jæja átakið er ennþá í gangi. Komin rúm vika núna og hef ekki ennþá gefist upp. Hjartanlega til hamingju ÉG!!! :)










þriðjudagur, apríl 08, 2003

Átak!!
Já þetta er einkunarorðið þessa dagana. Mín er semsé byrjuð í átaki eina ferðina enn. Átak dagsins í dag er kennt við töfraefnið Herbalife sem undirrituð hefur nýlega fest kaup á. Vinkonur mínar, herbódrottningarnar Mrs X og Mrs Y, hafa verið á þessu undraefni í næstum ár og bera því vel söguna. Hef ég gert mikið grín að þeim en varð að lokum að éta öll stóryrðin ofan í mig þegar ég freistaðist loksins til að prufa sjálf. Pæliði bara í því! Engin líkamsrækt, enginn sviti heldur bara borða duft og þú verður grönn og spengileg á örfáum vikum. Gæti varla verið hentugra ;) Þetta átak er búið að vera í gangi í nákvæmlega 5 daga núna og gengur bara furðu vel. Duftið bragðast framar öllum vonum og ég hef ekkert svindlað.
Hef einnig tekið uppá því að kaupa daglega nammi fyrir vinnufélaga, vini og ættingja og afhenta þeim með bros á vör. Í dag keypti ég Lion Bar fyrir vinnufélagana, alls 4 stikki. Bæði eyk ég á vinsældirnar og svo er þetta er mín djöfullega aðferð til að fita fólkið í kringum mig meðan ég grennist.... múhaha múhahahaha MÚHAHAHAAAA!!!

Læt ég svo fylgja gamalt og gott spakmæli sem ég hef lengi í hávegum haft.......
"Góði guð,
ef þú getur ekki gert mig granna, gerðu þá vinkonur mínar feitar!"










miðvikudagur, apríl 02, 2003

Hvað eiga Danir að gera í sumar??
Eiga Danir* að fara til Asíu og hætta á að verða annaðhvort seld fyrir andvirði einnar jarðsprengju af kynóðum Al Quaida stríðsmanni eða hrynja niður úr lungnabólgu/heilahimnu faraldrinum sem geisar þar. Eiga þeir kannski að fara til S-Ameríku í málaskóla með fullt af litlum Ameríkönum og tönglast á "hombrey, porkey" í allt sumar??
-Eða eiga þeir að fara til Sviss, hressa uppá þýskuna sína, æfa jóðl og geitahirðu eða eiga þeir bara að vera heima og græða pening??

Allar þessar spurningar hafa gert Dani alveg kolruglaða og vita þeir ekkert í sinn ligeglad haus. Hugsa að Dönum finnist best að stinga höfðinu í sandinn og ákveða bara ekki neitt. Þessi framtíðarbissness er allt of flókinn fyrir okkur Danina. Getur ekki bara einhver ákveðið þetta fyrir okkur?? Hvað finnst ykkur kæru vinir og kunningjar og einstaka ókunna fólk sem villist hingað inn... Hvað eiga gera Danir þá???


*Orðiðn "þeir" og "Danir" standa hér fyrir nafninu Gerður Björk Stefánsdóttir










Stelpa, tvíburi, háskólanemi og sendiráðsstarfsmaður sem búsettur er í Vínarborg.

Tilvitnun mánaðarins:
Anyone who lives within their means suffers from a lack of imagination.
Oscar Wilde

- Ítaliufarinn
- Tai-landsfarinn
- Heimsreisufarar
- Sigga skokk
- Sauðurinn
- Tálkvenndið
- Mama Ace
- Hlibbið
- HuldaDögg
- Vera McBeal
- Thora-Spanjó
-
Bassaleikarinn í Roads
- Mr.Pölson
-
Kellingavæl
-
Siggaligg

- febrúar 2003
- mars 2003
- apríl 2003
- maí 2003
- júní 2003
- júlí 2003
- ágúst 2003
- september 2003
- október 2003
- nóvember 2003
- desember 2003
- janúar 2004
- febrúar 2004
- mars 2004
- apríl 2004
- maí 2004
- júní 2004
- júlí 2004
- ágúst 2004
- september 2004
- október 2004
- nóvember 2004
- desember 2004
- janúar 2005
- febrúar 2005
- mars 2005
- apríl 2005
- maí 2005
- júní 2005
- júlí 2005
- ágúst 2005
- september 2005
- október 2005
- nóvember 2005
- desember 2005
- janúar 2006
- febrúar 2006
- mars 2006
- apríl 2006
- maí 2006
- júní 2006
- júlí 2006
- ágúst 2006
- september 2006
- október 2006
- nóvember 2006
- desember 2006
- febrúar 2007

- blogger
- blogskins
- haloscan
- myndasmiðurinn
- hönnuðurinn


Site Meter